41. sambandsþing STF
Brú félag stjórnenda • 30. júní 2025

41. þing STF (Sambands stjórnendafélaga) var haldið dagana 2.-3. maí sl. á Natura Berjaya hótelinu í Reykjavík. Þingið er haldið annað hvert ár og skiptast aðildarfélögin á að halda þingið með STF. Í ár vorum við þinghaldarar.


Megin áhersla þingsins voru markaðsmál félaganna og að greina hvar tækifærin okkar allra liggja. Fyrir Brú og öll félögin skiptir nýliðun miklu máli og því mikilvægt að við séum sýnileg um land allt. Einnig var skoðað hvernig félögin geti stuðlað að jafnara kynjahlutfalli meðal sinna félaga.


Eyrún Huld Harðardóttir, markaðsséfræðingur og varamaður í stjórn Brúar, flutti frábært erindi um markaðsmál og kynnti þær breytingar sem orðið hafa á markaðsmálum Brúar síðan í haust. Einnig fóru allir þingfulltrúar í vinnustofu um markaðssmál undir handleiðslu Eyrúnar. Þökkum henni innilega fyrir alla þá frábæru vinnu sem hún lagði til þingsins.

Eftir Brú stéttarfélag 16. september 2026
Þann 13. október kl. 11:00 verður opnað fyrir bókanir yfir jól og áramót 🎄✨
Eftir Brú stéttarfélag 15. september 2026
Næsta opnun sumarbústaða
Eftir Brú félag stjórnenda 7. ágúst 2026
Fögnum fjölbreytileikanum 🏳️‍🌈