Menntasjóður
Félagar geta sótt um fjölbreytta styrki vegna sí- og endurmenntunar, stjórnendanáms og tómstunda.

Styrkflokkar
Umsóknir þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar. Sótt er um alla styrki rafrænt á Mínum síðum.
Menntastyrkur
200.000 kr.
- Greidd eru 80% af kostnaði.
- Hægt að nýta vegna náms, námskeiða, ráðstefna, málþinga, kynnis- og fræðsluferða.
- Einnig má nýta sem styrk upp í ferðakostnað vegna náms.
- Styrkupphæðin endurnýjast á 12 mánaða fresti.
Stjórnendanám SA og STF
80% af kostnaði
- Stjórnendanám í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri
- Þessi styrkur er alveg aðskildur einstaklingsbundna menntastyrknum og hefur ekki áhrif á hann.
- Námið er ígildi 30 ECTS eininga hjá viðskiptafræðideild HA.
- Hægt er að lesa nánar um stjórnendanám STF og SA hér.
Tómstundastyrkur
35.000 kr.
- Greidd eru 80% af kostnaði.
- Styrkupphæð endurnýjast á 12 mánaða fresti.
- Tómstundarstyrkur er óháður menntastyrksupphæðinni.
Skólagjaldastyrkur
Allt að 600.000
- Þegar sótt er um dýrara nám er hægt að fá styrk fyrirframgreiddan.
- Greidd eru allt að 400.000 kr. af skólagjöldum sem ná 600.000 kr
- Styrkupphæðin endurnýjast 2 árum eftir að sótt var um styrk
- Greidd eru allt að 600.000 kr. af skólagjöldum sem ná 900.000 kr.
- Styrkupphæðin endurnýjast 3 árum eftir að sótt var um styrk.
Gagnlegar upplýsingar
Umsóknir og útgreiðslur
- Umsóknir: Sótt er um menntastyrki rafrænt á Mínum síðum.
- Umsóknarfrestur: Umsóknir og öll nauðsynleg fylgigögn þurfa að berast fyrir 20. hvers mánaðar svo útgreiðsla geti farið fram í sama mánuði.
- Útgreiðslur: Styrkir eru greiddir út síðasta virka dag hvers mánaðar.
- Fylgigögn: Reikningar og staðfestingar á greiðslu þurfa að fylgja styrkumsóknum. Umsóknir þurfa að varða verkefni sem áttu sér stað innan síðustu 12 mánaða. Hjá nýjum félögum má verkefnið eða reikningurinn ekki vera frá því fyrir inngöngu í félagið.
Réttindi félaga
- Réttindaávinnsla: Nýr félagi öðlast almennt rétt til styrkja eftir 6 mánaða samfelldar iðgjaldagreiðslur í Starfsmenntasjóð STF.
- Lágmarkstekjur: Til að öðlast fullan styrkjarétt þarf iðgjaldastofn að ná 651.102 kr. á mánuði samkvæmt viðmiði reglugerðarinnar. Ef greitt er af lægri fjárhæð geta styrkir skerst hlutfallslega.
- Styrkupphæðir: Greitt er allt að 80% af reikningsfjárhæð, að hámarki samkvæmt viðkomandi styrkflokki.
- Endurnýjun styrkja: Almennur styrkjaréttur endurnýjast á 12 mánaða fresti. Sérstakar reglur gilda um fyrirframgreidda styrki vegna dýrara náms, þar sem endurnýjunartími getur verið 2 eða 3 ár.
- Réttindi eftir starfslok: Félagar sem hætta störfum frá 65 ára aldri geta haldið styrkjaréttindum sínum, að uppfylltum skilyrðum 4.2. gr. reglugerðarinnar. Til að halda fullum réttindum þarf almennt 10 ára reglulega iðgjaldasögu fyrir starfslok. Réttindi skerðast hlutfallslega ef greiðslusagan er styttri.
Skattskylda styrkja
- Menntastyrkir eru almennt skattskyldir og teljast til tekna styrkþega.
- Frádráttur vegna náms: Heimilt getur verið að færa kostnað til frádráttar á móti styrk vegna náms, námskeiða eða endurmenntunar sem tengist starfi styrkþega. Frádráttur getur aldrei verið hærri en styrkfjárhæðin.
- Tómstundanámskeið: Ekki er heimilt að færa kostnað til frádráttar vegna námskeiða sem tengjast ekki starfi, svo sem námskeiða sem sótt eru í tómstundaskyni.
- Staðgreiðsla skatts er ekki dregin frá við útgreiðslu styrkja hjá STF. Styrkþegi þarf að gera grein fyrir styrknum og mögulegum frádrætti á skattframtali og fer skattalegt uppgjör fram við álagningu opinberra gjalda.
- Nánari upplýsingar um skattlagningu styrkja má finna á vef Skattsins.