Heimili leiðtoga síðan 1919
Stéttarfélag með sterkar rætur og öfluga framtíðarsýn

1.706
Fjöldi leiðtoga
28
Sumarhús og íbúðir
0,7%
Lágt félagsgjald
Kostir aðildar
Brú er stéttarfélag stjórnenda á höfuðborgarsvæðinu og heyrir undir Samband stjórnendafélaga. Innan STF eru 6 stjórnendafélög um land allt.
- Sterkir kjarasamningar
- Öflugur sjúkrasjóður með fjölbreyttum styrkjum
- Góðir menntastyrkir auk faglegs stjórnendanáms
- Full réttindi ævilangt eftir 10 ár
- Ríkuleg orlofskjör
- Vönduð og vel útbúin sumarhús

Orlofskjör og orlofshús
Nýta má orlofssjóðinn til kaupa niðurgreiddar Ferðaávísanir, gjafabréf Icelandair, veiðikortið og útilegukortið. Eins geta félagar bókað orlofshús hjá Brú sem og öllum aðildarfélögum STF á Mínum síðum.

Menntasjóður
Hægt er að nýta menntasjóð á fjölbreyttan hátt, hvort sem um stjórnendanám, ráðstefnur eða tómstundir er að ræða. Eins geta félagar átt rétt á ferðastyrkjum vegna náms. Möguleikar eru á að fá fyrirframgreiðslur fyrir dýrara námi.

Sjúkrasjóður
Sækja má um niðurgreiðslu á sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu, gleraugum, linsum, líkamsrækt og fleira. Einnig er í boði fæðingarstyrkur og styrkur vegna frjósemismeðferðar. Ekkert þak er á upphæð sjúkradagpeninga.
Ert þú nýr stjórnandi?
Þegar nýtt hlutverk tekur við er mikilvægt að geta gengið að baklandi sem gætir þinna hagsmuna.
Brú sér um þig á meðan þú sérð um þitt fólk.