Kjaramál

Samningar
Brú er aðildarfélag að Sambandi stjórnendafélaga (STF), sem fer með samningsrétt aðildarfélaga sinna og annast gerð kjarasamninga fyrir þeirra hönd.
Stjórnendur eru undanþegnir verkföllum og verkbönnum annarra stéttarfélaga, halda launarétti sínum og sinna áfram sínum hefðbundnu starfsskyldum.
Vantar þig aðstoð með kjara- og réttindamál?
- Ertu með spurningar um kjör þín eða réttindi á vinnumarkaði? Við erum hér til að aðstoða þig.
- Sendu okkur fyrirspurn á bru@brustettarfelag.is.
Kjarasamningayfirlit
STF er með eftirfarandi kjarasamninga:
- Samtök atvinnulífsins (SA) – kjarasamningur 2024–2028.
- Samband íslenskra sveitarfélaga – kjarasamningur 2024–2028.
- Reykjavíkurborg – kjarasamningur 2024–2028.
- Ríkið – kjarasamningur 2024–2028.
- Orkuveita Reykjavíkur – kjarasamningur 2024–2028.
- Vegagerðin – stofnanasamningur frá 2025 sem byggir á kjarasamningi STF og ríkisins.
- Faxaflóahafnir - kjarasamningur frá 2019-2023
Hvaða kjarasamningur gildir fer eftir atvinnurekanda og ráðningarkjörum viðkomandi félaga.
Hér má nálgast alla kjarasamninga STF, ásamt eldri samningum og viðeigandi fylgiskjölum.
Helstu atriði kjarasamnings SA og STF
Desemberuppbót
Full uppbót: Miðast við 45 unnar vikur eða meira á almanaksári, fyrir utan orlof.
Réttur til greiðslu: Starfsmaður á rétt á desemberuppbót hafi hann starfað samfellt hjá sama atvinnurekanda í að minnsta kosti 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða sé í starfi 1. desember. Uppbótin greiðist hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu.
Fæðingarorlof: Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar.
Orlofsuppbót
Full uppbót: Miðast við 45 unnar vikur eða meira á almanaksári, fyrir utan orlof.
Réttur til greiðslu: Starfsmaður á rétt á orlofsuppbót hafi hann starfað samfellt hjá sama atvinnurekanda í að minnsta kosti 12 vikur á síðustu 12 mánuðum, miðað við 30. apríl, eða sé í starfi 1. maí. Uppbótin greiðist hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu.
Fæðingarorlof: Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda telst lögbundið fæðingarorlof til starfstíma við útreikning uppbóta.
Næsta launahækkun
Persónubundin laun: Laun stjórnenda skulu endurspegla vinnuframlag, hæfni, menntun, stjórnunarnám, endurmenntun, starfsreynslu, innihald starfsins og þá ábyrgð sem því fylgir.
Launaviðtal: Starfsmaður á rétt á viðtali við yfirmann sinn að minnsta kosti einu sinni á ári um störf sín og hugsanlegar breytingar á starfskjörum.
Orlofsréttur
Athugið: Stjórnendur skulu aldrei hafa lakari orlofsrétt heldur en undirmenn þeirra skv. kjarasamningum við SA. Starfsmaður sem öðlast rétt hjá fyrri vinnuveitanda fær hann að nýju eftir 3 ára starf hjá nýjum vinnuveitanda.
Stjórnandi sem áður hefur starfað í sama fyrirtæki haldi óskertum þeim rétti til viðbótarorlofs sem hann hafði er hann tók við stjórnendastarfinu.
Sjáið nánari útfærslu á orlofsréttindum í kjarasamningu SA og STF, 2.1. Við vekjum athygli á því að hægt er að semja sérstaklega um orlofsréttindi við ráðningu.
Uppsagnafrestur
Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur. Uppsögn skal vera skrifleg og miðast við mánaðamót. Uppsögn skal jafnframt vera á sama tungumáli og ráðningarsamningur starfsmanns.
Lengri uppsagnarfrestur vegna lífaldurs
Starfsfólk sem hefur starfað samfellt í að minnsta kosti 10 ár hjá sama fyrirtæki njóta sérstaks uppsagnarréttar vegna aldurs. Starfsmaður getur þó sagt upp með 3 mánaða fyrirvara.
- 55 ára - 4 mánuðir
- 60 ára - 5 mánuðir
- 63 ára - 6 mánuðir
Viðtal: Starfsmaður á rétt á viðtali um starfslok sín og ástæður uppsagnar. Beiðni um viðtal skal koma fram innan fjögurra sólarhringa frá því uppsögn er móttekin og skal viðtal fara fram innan fjögurra sólarhringa þar frá.
Takmörkun uppsagnarheimildar: Sérstakar lagareglur takmarka uppsagnarheimildir atvinnurekenda, meðal annars gagnvart trúnaðarmönnum, barnshafandi starfsmönnum og starfsfólki í fæðingar- eða foreldraorlofi.
Veikindaréttur
Athugið: Veikindaréttur miðast við hverja 12 launamánuði, ekki almanaksár. Við upphaf veikinda eru áður greiddir veikindadagar á síðustu 12 launamánuðum dregnir frá áunnum rétti. Launalaus tímabil teljast ekki með við útreikninginn.
Veikindi barna
Á fyrsta starfsári eiga foreldrar rétt á tveimur dögum fyrir hvern unninn mánuð, að hámarki 12 dögum á hverjum 12 mánuðum, vegna veikinda barna undir 13 ára aldri.