Um okkur
Stjórn og starfsfólk

Saga Brúar
Brú félag stjórnenda var stofnað þann 3. mars 1919 í húsi K.F.U.M., þá undir nafninu Verkstjórafélag Reykjavíkur. Félagið varð til í kringum hagsmunabaráttu verkstjóra og hefur frá upphafi haft það að markmiði að standa vörð um réttindi, kjör og velferð félaga sinna. Í dag er Brú stéttarfélag fyrir stjórnendur og leiðtoga á höfuðborgarsvæðinu og heyrir undir Samband stjórnendafélaga.
Félagið leggur áherslu á persónulega þjónustu, góða kjarasamninga, fjölbreytta styrki í mennta- og sjúkrasjóði og frábær orlofshús.

Hagnýtar upplýsingar
Iðgjöld
Samband stjórnendafélaga (STF) annast innheimtu iðgjalda fyrir hönd Brúar og annarra aðildarfélaga innan STF.
Iðgjöld skiptast með eftirfarandi hætti:
- Félagsgjald: 0,7% af heildarlaunum (greitt af félaga)
- Sjúkrasjóður: 1% af heildarlaunum (greitt af atvinnurekanda)
- Orlofssjóður: 0,25% af heildarlaunum (greitt af atvinnurekanda)
- Starfsmenntasjóður: 0,4% af heildarlaunum (greitt af atvinnurekanda)
Lágmarkstekjuviðmið eru 651.102 kr. og er miðað við þá fjárhæð við útreikning styrkja úr sjúkra- og menntasjóði.
Frekari upplýsingar um iðgjaldaskil og greiðslur fyrir launagreiðendur má nálgast hér á vef STF.
Fyrirspurnir varðandi iðgjöld má senda á netfangið: stf@stf.is.





