Einisfold 1, Skorradalur (lokað vegna framkvæmda)
UM ORLOFSHÚSIÐ
Sumarbústaðir félagsins í Skorradalnum hafa lengi notið mikilla vinsælda meðal félaga í Brú. Staðsetningin er líka einstaklega skemmtileg, enda standa bæði húsin við Skorradalsvatn, umvafin fallegri náttúru.
Einisfold 1 var byggt árið 2003 og er um 80 fermetrar að stærð. Eftir 23 ára notkun var kominn tími á endurnýjun.
Í september 2026 hófust því umfangsmiklar endurbætur á húsinu þar sem allt innanhúss verður endurnýjað, auk þess sem pallurinn í kringum húsið verður tekinn í gegn.
Markmiðið er að skapa enn betri, fallegri og notalegri aðstöðu fyrir félaga og tryggja að húsið þjóni tilgangi sínum vel um ókomin ár.
Félagið mun senda öllum félögum sínum tölvupóst þegar húsið hefur opnað á ný fyrir bókanir.

