Orlofssjóður
Félagsfólk í Brú nýtur ýmissa fríðinda í gegnum orlofssjóð.
Orlofskjör

Gjafabréf Icelandair
Félagar geta keypt niðurgreidd gjafabréf frá Icelandair og nýtt þau við kaup á flugmiðum eða pakkaferðum.
- Hámarksfjöldi á ári: 2 stykki
- Upphæð gjafabréfs er 30.000 kr., verð til félaga er 22.000 kr.
- Punktafrádráttur fyrir hvert keypt bréf: 2 punktar
- Gildir í 5 ár
- Hver sem er getur nýtt gjafabréfið
- Hægt er að nýta gjafabréfið upp í margar bókanir
- Gilda upp í flug innan- og utanlands
- Gjafabréfin eru rafræn og fá félagar sendan kóða með tölvupósti
- Gjafabréfin fást ekki endurgreidd

Ferðaávísun
Ferðaávísunin gildir á hótelum um land allt og hjá afþreyingarfyrirtækjum.
- Niðurgreidd eru 30% af keyptri upphæð
- Hámarksniðurgreiðsla er 25.000 kr. árið 2026
- Þau hótel sem eru í samstarfi við Ferðaávísunina skuldbinda sig til þess að bjóða bestu kjörin miðað við það sem almennt býðst
- Alltaf er hægt að kaupa fleiri Ferðaávísanir enda þótt niðurgreiðslan hafi verið fullnýtt – eftir sem áður bjóðast bestu hótelkjörin
- Ef Ferðaávísun er ekki notuð er hægt að sækja um endurgreiðslu á Mínum síðum

Veiðikortið og útilegukortið
Veiði- og útilegukortin veita aðgang að tjaldsvæðum og veiðivötnum um land allt.
- Orlofssjóðurinn býður upp á niðurgreiðslu á útilegu- og veiðikortinu.
- Hægt er að kaupa kortin rafrænt.
- Útilegukortið veitir þér aðgang að 30 tjaldsvæðum.
- Veiðikortið veitir þér aðgang að 38 vötnum.

Orlofshús
Félagar í Brú geta bókað orlofshús í eigu Brúar sem og önnur orlofshús í eigu aðildarfélaga STF á Mínum síðum.
Samtals eru 28 orlofseignir í boði:
- 16 bústaðir
- 12 íbúðir
Eignirnar eru staðsettar á Vesturlandi, á Norðurlandi eystra, á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.