Fyrir launagreiðendur
Greiðsla iðgjalda
Samband stjórnendafélaga (STF) annast innheimtu iðgjalda fyrir hönd Brúar og annarra aðildarfélaga STF.
Launagreiðendur eru hvattir til að skila skilagreinum rafrænt beint í gegnum launakerfi (xml) eða á vef. Krafa stofnast í banka við innsendingu á skilagreinum.
Félaganúmer Brúar stéttarfélags: 931
- Bankareikningur: 0130-26-375
- Kennitala: 680269-7699
Nánari upplýsingar
Iðgjöld skiptast með eftirfarandi hætti:
- Félagsgjald: 0,7% af heildarlaunum (greitt af félaga)
- Sjúkrasjóður: 1% af heildarlaunum (greitt af atvinnurekanda)
- Orlofssjóður: 0,25% af heildarlaunum (greitt af atvinnurekanda)
- Starfsmenntasjóður: 0,4% af heildarlaunum (greitt af atvinnurekanda)

Fræðslustyrkir Áttarinnar
Atvinnurekendur geta sótt um styrki til starfsmenntunar og fræðslu starfsfólks í gegnum Áttina, sameiginlega umsóknargátt starfsmenntasjóða.
Fyrirtæki geta fengið allt að 80% af námskeiðskostnaði endurgreiddan, að hámarki 200.000 kr. fyrir hvert nám. Vegna kostnaðarsamara náms getur styrkur numið allt að 600.000 kr., að uppfylltum skilyrðum.
Styrkur til fyrirtækis skerðir ekki einstaklingsbundinn styrkjarétt félagsfólks.