Jólaviðburðir Brúar
Líkt og undanfarin ár býður Brú félagsfólki sínu að kaupa miða á skemmtilegar jólasýningar fyrir alla fjölskylduna á niðurgreiddu verði. Í ár eru tvær spennandi sýningar í boði:

🎭 Jólakötturinn og dularfulla kistan
Salurinn í Kópavogi
Töfrandi jólaævintýri þar sem Jólakötturinn fær óvænt það verkefni frá Grýlu að bjarga jólunum í Grýluhelli. Með hjálp barnanna í salnum leggur hann af stað í skemmtilegt ævintýri fullt af töfrum, prakkarastrikum, frumsaminni tónlist og brúðuleik. Á sviðinu eru tveir leikarar ásamt nokkrum óvæntum rauðklæddum gestum.
Sýningartímar:
- Laugardaginn 28. nóvember kl. 13:00
- Sunnudaginn 29. nóvember kl. 11:00
⏱️ Lengd sýningar: 45 mínútur.

🔦 Ævintýri í jólaskógi
Guðmundarlundur
Einstök jólasýning undir berum himni þar sem gestir ganga í litlum hópum með vasaljós um fallega skreyttan jólaskóg og hitta Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og fleiri ævintýralegar verur. Á leiðinni eru sagðar skemmtilegar jólasögur og að göngunni lokinni er hægt að hitta jólasvein, taka myndir og njóta heits kakós og piparkaka.
Sýningin er sérstaklega ætluð börnum 4 ára og eldri.
Sýningartímar:
- Laugardaginn 12. desember: kl. 16:40, 16:50, 17:00, 17:30 og 17:40.
- Sunnudaginn 13. desember: kl. 16:40, 16:50, 17:00, 17:10, 17:20 og 17:30.
⏱️ Lengd sýningar: Tæplega 60 mínútur.
🎟️ Miðaverð og miðakaup
Miðaverð: 2.000 kr. á mann fyrir félagsfólk.
Miðakaup: Félagar fá senda Tix-kauphlekki í tölvupósti þar sem hægt er að kaupa miða á sýningarnar.
Hámark: Hver félagi getur keypt samtals 5 miða á jólasýningarnar tvær.
Athugið: Ef keyptir eru fleiri en 5 miðar verða umfram miðar bakfærðir og endurgreiddir á greiðslukortið. Við biðjum félagsfólk vinsamlegast að virða hámarksfjöldann svo sem flestir fái tækifæri til að njóta jólaviðburðanna.
❤️ Tryggðu fjölskyldunni notalega jólastund og njótið töfra jólanna saman!