Hrókaland 1

Akureyri

Búnaður og aðstaða

Svefnpláss
9
Svefnherbergi
3
Stærð
108
m2
Gæludýr
Nei
Ungbarnarúm
Já
Hleðslustæði
Já

Húsið við Hyrnuland 14 var byggt árið 2024 og er 108,6 fm heilsárshús rétt fyrir ofan Akureyri. Staðsetning er við Hlíðarfjallsveg, u.þ.b. miðja vegu á milli bæjarins og skíðaaðstöðu í Hlíðarfjalli. 6 fermetra upphituð útigeymsla er áföst húsinu og hugsuð fyrir búnað skíða- og útivistarfólks.

Húsið er vel búið, með góðri nettengingu, heitum potti og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Sængur og koddar eru í húsinu en leigjendur þurfa að hafa með sér rúmföt, lök, handklæði og salernispappír. Nespresso-kaffivél er í húsinu. Útihúsgögn og gasgrill eru á staðnum. Svefnpláss er fyrir 6 fullorðna í þremur herbergjum ásamt barnarúmi.

Allt dýrahald er með öllu óheimilt.

Önnur þægindi
Smart TV
Heitur pottur
Gasgrill
Frítt internet
Barnastóll
Snjalllæsing
Útihúsgögn
Þvottavél
Þurrkari
Leikvöllur í grennd

Verðskrá

Helgar (fös – mán)
34.900 kr.
Aukanótt
5.900 kr.
Virkir dagar (2 nætur lágmark)
15.900 kr.
Vikuverð
49.900 kr.

Myndagallerí

No items found.

Reglur og úthlutun

Sumar- og páskaúthlutun

  • Sumarumsóknir: Umsóknartímabilið er auglýst sérstaklega ár hvert, að jafnaði í mars.
  • Úthlutun: Sumarbústöðum er úthlutað samkvæmt punktastöðu umsækjenda. Hægt er að velja fleiri en einn valkost í forgangsröð, en aðeins er hægt að fá einni viku úthlutað.
  • Skiptidagar: Sumarleiga og páskavika eru frá miðvikudegi til miðvikudags.
  • Páskavikan: Fer í sérstaka úthlutun sem er auglýst sérstaklega.
  • Punktafrádráttur: Sumar- og páskavika kosta 24 punkta hvor.

Vegna mikillar eftirspurnar er félögum með stutta félagsaðild eða fáa punkta bent á að meiri möguleikar geta verið á úthlutun snemma eða síðla sumars.

Vetrarbókanir

  • Bókunarfyrirkomulag: Á veturna gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
  • Forgangur: Félagar í Brú hafa forgang að orlofshúsum félagsins fyrstu fjórar4 vikurnar eftir að opnað er fyrir bókanir. Að þeim tíma liðnum er opnað fyrir bókanir milli allra aðildarfélaga STF.
  • Fjöldi bókana: Hægt er að vera með 2 bókanir á hverju vetrarbókunartímabili.
  • Hámarkslengd: Hver bókun getur að hámarki verið 7 dagar. Vilji félagi bóka lengri dvöl er hægt að hafa samband við skrifstofu Brúar.
  • Helgarleiga: Helgar eru bókaðar frá föstudegi til mánudags. Hægt er að lengja dvölina með því að bæta við dögum fyrir eða eftir helgi.
  • Punktafrádráttur: Engir punktar dragast frá vegna almennra vetrarbókana.

Ef félagi hefur þegar nýtt báðar bókanir sínar en sér laust orlofshús með stuttum fyrirvara er hægt að hafa samband við skrifstofu Brúar og kanna möguleika á viðbótarbókun.

Jól og áramót

  • Sérstakar bókanir: Opnað er sérstaklega fyrir bókanir yfir jól og áramót.
  • Úthlutun: Hér gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
  • Forgangur: Félagar Brúar hafa forgang að eignum félagsins fyrstu 4fjórar vikurnar.
  • Punktafrádráttur: Jóla- og áramótavika kosta 24 punkta hvor.
  • Dagsetningar fyrir opnun bókanna eru auglýstar sérstaklega bæði á vef félagsins sem og upplýsingar eru sendar á netfang félaga.

Punktakerfi

  • Punktasöfnun: Fyrir hvern mánuð sem iðgjöld eru greidd í orlofssjóð safnast 1 punktur, að hámarki 12 punktar á ári.
  • Punktafrádráttur: Sumar-, páska-, jóla- og áramótavika kosta 24 punkta hver.
  • Vetrarleiga: Enginn punktafrádráttur er vegna almennra vetrarbókana.
  • Punktastaða: Punktar eru uppfærðir mánaðarlega. Félagar geta skoðað punktastöðu sína á Mínum síðum undir Valmynd → Saga → Punktar.
  • Þegar úthlutað er eftir punktastöðu ræður fjöldi punkta forgangi. Ef tveir eða fleiri umsækjendur eru með jafnan rétt á sömu viku í sama húsi er dregið á milli þeirra með rafrænum hætti.

Afbókunarreglur

  • Vetrarleiga: Afbóka þarf með að minnsta kosti 7 daga fyrirvara til að fá 80% leigugjaldsins endurgreitt.
  • Sumarleiga: Afbóka þarf með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara til að fá 80% leigugjaldsins endurgreitt.
  • Afbókun með skemmri fyrirvara: Þá fást 80% leigugjaldsins aðeins endurgreidd ef orlofshúsið leigist aftur.
  • Afbókun vegna veikinda: Hægt er að fá 100% endurgreiðslu gegn læknisvottorði. Tilkynna þarf veikindi með tölvupósti áður en leigutími hefst, en heimilt er að skila læknisvottorði síðar.

Allar afbókanir þarf að tilkynna á netfangið bru@brustettarfelag.is

Ábyrgð leigjanda og umgengni

  • Framleiga: Óheimilt er að framleigja orlofshús.
  • Ábyrgð: Leigjandi ber ábyrgð á húsinu og búnaði þess meðan á dvöl stendur og getur þurft að bæta tjón sem verður á leigutímanum.
  • Umgengni: Skila skal orlofshúsinu hreinu og snyrtilegu og gæta vel að húsinu, búnaði þess og umhverfi.
  • Tjón: Tilkynna skal skrifstofu Brúar um skemmdir eða tjón sem verða á leigutímanum.
  • Vanræksla: Ef húsi er ekki skilað í viðunandi ástandi getur leigjandi þurft að greiða fyrir þrif eða viðgerðir. Alvarleg eða ítrekuð brot geta leitt til tímabundinnar sviptingar á rétti til orlofshúsadvalar.