Aukin orlofsgæði á nýju ári

Á nýju ári bætist Ferðaávísunin og gjafabréf Icelandair við þau orlofsgæði sem félagar í Brú hafa aðgang að.

‍

Frá og með 1.janúar 2025 verður í boði fyrir félaga að kaupa gjafabréf í flug með Icelandair sem og kaupa Ferðaávísun sem nýtist í gistingu um land allt og fleira, til viðbótar við bústaði, útilegu- og veiðikort.

Gjafabréf Icelandair

Almennar upplýsingar:

  • Hámarksfjöldi á ári: 2 stykki.
  • Upphæð gjafabréfs 30.000 kr, verð til félaga: 22.000 kr.
  • Punktafrádráttur fyrir hvert keypt bréf: 2 punktar.
  • Gildir í 5 ár.
  • Hver sem er getur nýtt gjafabréfið.
  • Hægt er að nýta gjafabréfið upp í margar bókanir.
  • Gilda upp í flug innan- og utanlands.
  • Gjafabréfin eru rafræn og eru send félaga í tölvupósti með kóða.
  • Gjafabréfin fást ekki endurgreidd.

Ferðaávísun

Ferðaávísunina er hægt að nota hjá:

  • Um það bil 40 hótelum og gististöðum um land allt.
  • 5 ferðaþjónustufyrirtækjum: Fjallafjöri, Ferðafélagi Íslands, Ferðafélagið Útivist, Af Stað ehf. og Guide to Europe.

Almennar upplýsingar:

  • Niðurgreitt er 30% af keyptri upphæð.
  • Hámarksniðurgreiðsla er 25.000 kr. fyrir árið 2025.
  • Ef félagi hefur fullnýtt niðurgreiðsluna er þó alltaf hægt að kaupa meira án frekari niðurgreiðslu en fær samt áfram bestu kjörin á hótelinu.
  • Þau hótel sem eru inn í Ferðaávísuninni skuldbinda sig til þess að bjóða upp á bestu kjörin miðað við það sem almennt er í boði.
  • Er rafræn.
  • Alltaf hægt að fá hana endurgreidda ef hún verður ekki notuð inn á Félagavefnum, fara undir; Valmynd, Ferðaávísun, Fá Ferðaávísun endurgreidda.

Hvernig bóka ég gistingu ?

  • Hægt er að skoða framboð á gististöðum inn á www.stf.orlof.is
  • Haft er beint samband við hótelið/gististaðinn sem viðkomandi hefur hug á því að gista á í gegnum síma eða í tölvupósti.
  • ATH hvort það sé laust á eftirfarandi dagsetningum og láta vita að greitt verði með Ferðaávísun stéttarfélaga.
  • Allar bókanir á hótelum/gististöðum vegna Ferðaávísana þurfa að fara fram í gegnum síma eða tölvupóst.
  • Gengið er frá greiðslu við komu á hótelið/gististaðinn, þá nægir að gefa upp kennitölu og viðkomandi starfskraftur fer inn í kerfið og dregur upphæðina frá keyptri Ferðaávísun.
  • Allar nánari upplýsingar um Ferðaávísunina má finna inn á Félagavefnum.

Hótel og gististaðir sem eru í samstarfi við Ferðaávísunina:

  • Íslandshótel/Fosshótel/Grand hótel (mörg hótel um land allt)
  • Berjaya Iceland Hotels og Hótel Edda (Natura Reykjavík, Berjaya Akureyri, Hótel Hérað, Berjaya Mývatn, Berjaya Höfn,Hótel Edda)
  • Kea hótel Akureyri
  • Center hótels
  • Artic hótels  
  • Hótel Siglunes
  • Vogur Sveitasetur
  • Landhótel
  • Hótel Ísland
  • Hótel Laugarbakki
  • Hótel Katla
  • Sigló hótel
  • Reykjavík Lights  
  • Storm hótel
  • Hótel Grímsborgir
  • Hótel Ísafjörður
  • Konvin hótel  
  • Hótel Heydalur
  • Hótel Höfn
  • Hótel Keflavík
  • Hótel Vestmanneyjar
  • Langaholt
  • Hótel Breiðdalsvík
  • Alba gistiheimili
  • Hótel Norðurland
  • Hótel Varmahlíð

Það eru alltaf að bætast við samstarfsaðilar inn í Ferðaávísunina, hægt er að skoða alla samstarfsaðila inn á Félagavefnum undir Ferðaávísun.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá staðsetningu hótela/gististaða vítt og breitt um landið:

Aukin orlofsgæði á nýju ári

‍