Jólaviðburðir Brúar

‍

Brú ætlar að endurtaka leikinn frá því í fyrra og bjóða upp á góða niðurgreiðslu á jólaviðburðum fyrir félaga Brúar um þessi jólin.

Viðburðirnir eru Ævintýri í jólaskógi, vasaljósaleikrit í Guðmundarlundi og Jólagjöf Skruggu í Þjóðleikhúsinu.

Brú tryggði sér fleiri miða en í fyrra sökum mikillar aðsóknar en biðlum þó til félaga að kaupa bara þann fjölda sem það þarf til þess að fleiri geti fengið að njóta (ath hámark 5 miðar á mann).

Hlekkir fyrir kaup á sýningunum verða sendir á virka félaga í Brú seinni partinn í október, fylgist vel með!

Jólagjöf Skruggu í Þjóðleikhúsinu

(fullt verð 5.500 kr., verð til félaga 2.000 kr stykkið)

Dagsetning í boði:

  • 30.nóvember kl: 15:00

Hér er hægt að lesa nánar um sýninguna.

Ævintýri í jólaskógi í Guðmundarlundi

(fullt verð 3.900 kr., verð til félaga 800 kr. stykkið)

Dagsetningar í boði:

  • 22.nóv (nokkrar tímasetningar í boði)
  • 23.nóv (nokkrar tímasetningar í boði)
  • 26.nóv (nokkrar tímasetningar í boði)
  • 28.des (nokkrar tímasetningar í boði)

Hér er hægt að lesa nánar um sýninguna.

‍

‍