Opnunardagsetningar fyrir veturinn 2026-2027

Dagsetningar fyrir veturinn 2026-2027

  • 19.maí kl: 11:00 opnar fyrir bókanir á tímabilinu 27. ágúst - 22. desember 2026. Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Á þessu tímabili er hægt að vera með 2 bókanir.
  • 22. september kl: 11:00 opnar fyrir bókanir á tímabilinu 5. janúar - 2. júní 2027. Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Á þessu tímabili er hægt að vera með 2 bókanir.
  • 13. október kl: 11:00 opnar fyrir bókanir fyrir jóla- og áramótaviku. Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Gagnlegar upplýsingar:

  • Ef félagi er kominn með 2 bókanir á tímabili en sér að það er laust með stuttum fyrirvara í bústað er hægt að hafa samband við skrifstofuna.
  • Hámarkslengd bókunar eru 7 dagar en ef viðkomandi vill bóka fleiri daga er hægt að hafa samband við skrifstofuna og athuga málið.
  • Helgarnar eru fastar frá föstudegi til mánudags, en það er hægt lengja í helgunum ef vill. Ef viðkomandi er nú þegar búin að bóka helgi en vill bæta við dögum er hægt að hafa samband við skrifstofuna.
  • Á forsíðunni á Mínum síðum birtast upplýsingar ef lausir bústaðir eru í boði á næstunni.
  • Einnig er auglýst á Facebook-síðu Brúar ef bústaðir hafa losnað með stuttum fyrirvara.

Punktainnvinnsla:

🟢 Punktainnvinnsla er 1 punktur fyrir hvern mánuð, 12 punktar fyrir allt árið.

➖ Punktastaða getur farið í mínus.

🟢  Punktar eru uppfærðir mánaðarlega.

🟢 Hægt er að sjá punktasöguna inni á Mínum síðum undir: valmynd - saga - punktar.

Punktafrádráttur:

🟢 Sumar-, páska-, jóla- og áramótavika kostar 24 punkta.

🚫Enginn punktafrádráttur er á veturna.

‍