Lífeyrissjóðsnámskeið 18. nóvember

Íslandsbanki býður félagsfólki Brúar upp á fræðslunámskeið um lífeyrismál miðvikudaginn 18. nóvember kl. 17:00 í fundarsal bankans í Norðurturni Smáralindar á 9. hæð.
Fyrirlesari er Haraldur Gunnarsson, viðskiptastjóri fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynna sér lífeyrismál. Tölvupóstur með upplýsingum um skráningu hefur verið sendur til allra félaga.
⏱️ Námskeiðið tekur um 90 mínútur
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Nauðsynlegt er að skrá sig svo hægt sé að áætla fjölda þátttakenda og veitingar.
Helstu málefni námskeiðsins
- Íslenska lífeyriskerfið, helstu stoðir þess og hvernig þær vinna saman.
- Ellilífeyrir frá Tryggingastofnun (TR), hvaða tekjur hafa áhrif á greiðslur?
- Lífeyrisréttindi í lífeyrissjóðum, hvar er hægt að nálgast upplýsingar um áunnin réttindi?
- Viðbótarlífeyrissparnaður, tilgreind séreign, bundin séreign og áhrif á ellilífeyri TR.
- Skipting lífeyrisréttinda milli hjóna og sambúðaraðila.
- Skattlagning lífeyristekna
- Erfðamál, meðal annars seta í óskiptu búi, erfðafjárskattur og fyrirframgreiddur arfur.
- Gagnleg ráð og gátlisti fyrir þá sem vilja undirbúa fjármálin við starfslok.
Hlökkum til að sjá ykkur!