Mannauðsdagurinn í Hörpunni 2. október
Brú stéttarfélag, Félag stjórnenda og Samband stjórnendafélaga (STF) voru saman með bás á Mannauðsdaginn sem haldinn var í Hörpu þann 2. október síðastliðinn. Mannauðsdagurinn er orðinn einn stærsti tengslamyndunarviðburður á sviði stjórnunar og mannauðsmála hér á landi. Dagurinn sameinar mannauðssérfræðinga, stjórnendur, ráðgjafa, frumkvöðla og aðra áhugasama um mannauðsmál og er mikilvægur vettvangur fyrir þekkingarmiðlun, tengslamyndun og innblástur.
Á deginum kynntum við starfsemi félaganna og sambandsins fyrir gestum og gangandi. Áttum fjölda skemmtilegra og áhugaverðra samtala og fengum jafnframt tækifæri til að kynna okkur og kynnast starfsemi annarra fyrirtækja sem tóku einnig þátt í viðburðinum.
Markmið okkar með þátttökunni var að auka sýnileika félaganna, ná til fleiri stjórnenda og leiðtoga og vekja athygli á þeim fjölbreyttu réttindum og frábæru fríðindum sem félagsaðild innan sambandsins hefur upp á að bjóða.
Dagurinn var ótrúlega skemmtilegur við þökkum öllum þeim sem heimsóttu básinn okkar fyrir frábær samtöl og góðar viðtökur!

